Aðgerðaáætlun loftslags- og umhverfismála

Landsvirkjun stuðlar að sjálfbærum heimi með umhverfislega sjálfbærri orkuvinnslu sem samræmist markmiðum heims um að halda hlýnun jarðar innan við 1,5°C.

Metnaðarfull aðgerðaáætlun loftslags- og umhverfismála

Við vitum að tíminn til aðgerða er núna. Fyrirtæki þurfa að setja sér metnaðarfull markmið til að stemma stigu við loftslagsbreytingar og hlúa að umhverfinu.

Við viljum taka þátt í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum, sýna virðingu fyrir þeim náttúruauðlindum okkur hefur verið treyst fyrir að nýta og vanda til verka. Þess vegna höfum við búið til áætlun um aðgerðir í loftslags- og umhverfismálum.

Í henni birtast metnaðarfull markmið og aðgerðir sem sýna forgangsröðun okkar næstu árin.

Leiðandi í loftslagsmálum

Landsvirkjun fékk A í einkunn fyrir stýringu eigin loftslagsáhrifa og afleiðinga loftslagsbreytinga á starfsemi fyrirtækisins árið 2023 hjá alþjóðlegu samtökunum CDP. Þetta er annað árið í röð sem Landsvirkjun fær hæstu einkunn en 2021 fékk orkufyrirtæki þjóðarinnar einkunnina A-, þá fyrst íslenskra fyrirtækja til að ná svo góðum árangri. Einkunnin A þýðir að Landsvirkjun telst til leiðandi fyrirtækja í loftslagsmálum á heimsvísu.

Samtökin CDP stuðla að samræmdri og faglegri upplýsingagjöf um umhverfismál, ásamt því að veita endurgjöf og hvetja til stöðugra umbóta. Upplýsingagjöfin er viðamikil og nær utan um loftslagsstýringu fyrirtækja með heildrænum hætti. Árið 2023 skiluðu um 23 þúsund fyrirtæki inn upplýsingum um loftslagsmál til samtakanna.

Landsvirkjun er í hópi 346 þeirra sem hljóta hæstu einkunn og komast á A lista samtakanna.

Lykiltölur

úr loftslagsbókhaldi Landsvirkjunar fyrir árið 2023

  • Kolefnisspor

    0tonnCO₂ -íg22%
  • Heildarlosun

    0tonnCO₂ -íg7%
  • Kolefnisbinding

    0tonnCO₂ -íg2%
  • Kolefnisspor á orkueiningu

    0gCO₂ -íg/kWst22%
  • Heildarlosun á orkueiningu

    0gCO₂ -íg/kWst7%
  • Losun orkuvinnslu á orkueiningu

    0gCO₂ -íg/kWst5%
  • Orkuvinnsla

    0TWst
  • Forðuð losun vegna orkuvinnslu

    0m. tonnCO₂ -íg

Hörður Arnarson forstjóri

„Loftslagsbreytingar varða okkur öll.

Sem orkufyrirtæki í eigu þjóðarinnar berum við ábyrgð á að bregðast við þeirri stöðu sem nú blasir við.

Við viljum leggja okkar af mörkum í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, sem eru eitt mest aðkallandi viðfangsefni mannkyns.“