Að græða 33.400 fót­bolta­velli

02.11.2024Umhverfi

Grein eftir Jónu Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun.

Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis.
Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis.

Að græða 33.400 fót­bolta­velli

Landsvirkjun hefur endurheimt landgæði sem jafnast á við 33.400 fótboltavelli á þeim tæpu 60 árum sem orkufyrirtæki þjóðarinnar hefur starfað.

Frá upphafi hefur Landsvirkjun unnið að gríðarmikilli uppgræðslu, skógrækt og endurheimt á votlendi á eigin vegum eða í samvinnu við aðra aðila, á landi sem samtals er tæpir 24 þúsund hektarar. Uppgræðsla þessi hefur verið á öllum starfssvæðum Landsvirkjunar og tengist að hluta því raski sem orðið hefur vegna starfseminnar.

Fyrstu aðgerðirnar hófust á Þjórsársvæðinu og efri hluti Þjórsárdals hefur tekið stakkaskiptum á þeim áratugum sem Landsvirkjun hefur starfað þar. Á Blönduheiðum, þ.e. Auðkúluheiði og Eyvindarstaðaheiði, hefur verið unnið að uppgræðslu í yfir 40 ár í stað þess lands sem fór undir Blöndulón. Nú er þar víða að finna öflugan jarðveg og falleg gróðurþekja er þar sem áður voru gróðurvana melar. Land hefur verið grætt upp á Mývatnssvæði, þar sem við rekum jarðvarmavirkjanir og stór uppgræðsluverkefni eru í gangi á Fljótsdalssvæði, allt frá Hálslóni og út á Héraðssand.

Lögð hefur verið áhersla á skógrækt við aflstöðvarnar og eru umfangsmestu svæðin á Þjórsársvæðinu en einnig hefur verið stunduð töluverð skógrækt á Sogssvæðinu og Blöndusvæðinu. Á nokkrum svæðum höfum við einnig endurheimt votlendi.

Við höfum alltaf lagt mikla áherslu á að vinna þessa endurheimt landgæða í nánu samstarfi við þau sem best til þekkja. Þannig höfum við átt og eigum enn gott samstarf við Land og skóg (áður Landgræðslu ríkisins og Skógrækt ríkisins), sem og heimamenn og félagasamtök. Við erum afar þakklát fyrir allt þeirra faglega framlag. Endurheimt landgæða á svæði sem jafngildir 33.400 fótboltavöllum er ekkert áhlaupaverk sem er unnið á einum degi. En smám saman hefur gróðurinn náð fótfestu á þessum svæðum.

Endurheimt landgæða hefur alltaf verið hluti af stefnu Landsvirkjunar því við viljum starfa í sátt við náttúruna og sýna henni virðingu. Fyrir nokkru ákváðum við að planta einungis innlendum trjátegundum í nýjum verkefnum og styrkja þannig náttúrulegt gróðurfar landsins og efla líffræðilega fjölbreytni. Við gerum okkur sannarlega grein fyrir að jafnvel þótt græna orkuvinnslan okkar sé eins umhverfisvæn og orkuvinnsla framast verður þá kallar hún á ýmsar breytingar og inngrip. Þess vegna leggjum við allt kapp á að bæta nágrenni okkar sem allra mest.

Innkaup í nærsamfélagi

Hluti af því að starfa í sátt við náttúruna og draga úr kolefnisspori starfseminnar felst líka í því að kaupa sem mest af vörum og þjónustu í nærsamfélagi stöðvanna okkar. Við leitum aldrei langt yfir skammt. Aðstæður eru vissulega misjafnar eftir starfssvæðum, en við náum að kaupa á bilinu 25-65% af vörum og þjónustu til daglegs rekstrar í nærsamfélaginu. Þessi innkaup eru af ýmsum toga, við kaupum t.d. eins mikið af aðföngum í mötuneyti starfsstöðva okkar heima í héraði og kostur er. Slíkt er hagkvæmt fyrir okkur öll og umhverfisvænt.