Vaðölduver skal það heita!
Fyrsta vindorkuver landsins, sem Landsvirkjun reisir nú í Rangárþingi ytra, ber hér eftir heitið Vaðölduver.
Vindorkuverið hefur hingað til gengið undir vinnuheitinu Búrfellslundur. Eftir að staðsetningu vindorkuversins var breytt og umfang þess minnkað teljum við ekki rétt að kenna það við Búrfell, enda er það fjall töluvert sunnar.
Vaðölduver rís sunnan við Sultartangastíflu á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu, á svæðinu við fellið Vaðöldu. Staðið hefur til um allnokkurn tíma að kenna vindorkuverið við Vaðöldu, en þar sem það var þekkt í öllu leyfisveitingaferlinu sem Búrfellslundur var ákveðið að hrófla ekki við nafninu fyrr.
Vegaframkvæmdir hafa staðið yfir við Vaðöldu frá sl. hausti á vegum verktakans Borgarverks. Við Vaðöldu rísa á næstu árum 28 vindmyllur frá þýska framleiðandanum Enercon. Fyrri 14 vindmyllurnar verða reistar vorið og sumarið 2026 og gangsettar um haustið. Reiknað er með að Vaðölduver verði að fullu tilbúið og komið í rekstur fyrir lok ársins 2027.