Snjór og jökulbráðnun
Eftir erfiða byrjun yfirstandandi vatnsárs hefur ræst vel úr að undanförnu. Miðlunarlón Landsvirkjunar standa nú öll mun betur en á horfðist. Við erum áfram háð duttlungum náttúrunnar, en horfur hafa breyst mjög til batnaðar frá því í ársbyrjun.
Vatnsár Landsvirkjunar hefst 1. október og þann dag í fyrra var útlitið ekki bjart. Eftir kalt og þurrt sumar urðum við að tilkynna stórnotendum syðra að skerða þyrfti orku til þeirra. Sú staða skánaði strax í nóvember, þegar innrennsli jókst í miðlunarlón. Það hélt áfram næstu mánuði og í byrjun febrúar var hægt að aflétta öllum skerðingum, eftir óvenju gjöfula vetrarmánuði.
Staða Blöndulóns og Hálslóns er nú með besta móti í sögulegu samhengi. Um liðin áramót var staða Þórisvatns viðkvæm, en frá þeim tíma hefur hins vegar enginn niðurdráttur verið þar. Hlýr og vætusamur vetur hefur því bætt stöðuna verulega. Því til viðbótar er snjóstaða á hálendinu með ágætum, auk þess sem vænta má jökulbráðnunar í sumar. Þar er þó ekki á vísan að róa, eins og sannaðist sl. sumar.
Þegar allt er lagt saman teljum við ágætar líkur á góðum miðlunarforða næsta haust, ef tíðin verður áfram hagfelld. Þessar breytingar koma sér vel núna, þegar við sjáum t.d. fram á að þurfa að stöðva vinnslu í Sigöldustöð um þriggja mánaða skeið á næsta ári, vegna stækkunar stöðvarinnar.