Megum við hóa í þig?

07.10.2024Hvammsvirkjun

Við hjá Landsvirkjun viljum komast í samband við minni fyrirtæki, einyrkja eða einstaklinga sem gætu tekið að sér ýmis tilfallandi verkefni með skömmum fyrirvara á athafnasvæði okkar á Suðurlandi.

Skráning á lista yfir tiltæka verktaka

Skráningarsíða

Nú styttist í að tímabil mikilla framkvæmda hefjist á athafnasvæði okkar á Suðurlandi, en reynslan hefur sýnt að slíkar framkvæmdir kalla á fjölmörg smærri verk og nauðsynlegt að geta kallað til verktaka vegna þeirra.

Til að gera leit að slíkum smærri verktökum skilvirkari hefur verið sett upp vefsíða þar sem hægt er að skrá sig á lista yfir tiltæka verktaka á svæðinu. Skipuleggjendur framkvæmda sjá fyrir sér að byrja alltaf á að fletta upp í þeim lista þegar þörf er á að kalla fleiri til verka. Nú óskum við eftir að allt áhugasamt fólk, sem hefur hug á að vera á listanum, sendi upplýsingar um sig og sérsvið sitt.

Listi af þessu tagi er hvorki skuldbindandi fyrir Landsvirkjun né þá aðila sem á hann verða skráðir. Listinn er eingöngu hugsaður til að veita gott yfirlit yfir hvaða sérhæfða starfsfólk gæti verið til taks á svæðinu hverju sinni.

Líklegt er kallað verði eftir fólki til að sinna:

  • Girðingavinnu
  • Uppgræðslu
  • Jarðvinnu
  • Ræstingum
  • Auk þess að kalla eftir rafvirkjum, pípurum, múrurum, smiðum og öðru fagmenntuðu iðnfólki í tilfallandi verkefni