Skerðingarnar hefjast 24. október að öllu óbreyttu
Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á suðvesturhluta landsins að skerða þurfi orku til starfsemi þeirra. Skerðingarnar hefjast 24. október, að öllu óbreyttu. Eins og nýliðin ár er ástæðan slæm staða miðlunarlóna á Þjórsársvæði. Þótt vætusamt hafi verið á láglendi í sumar var ekki sama uppi á teningnum á hálendinu. Þar var þurrt og jafnframt kalt, sérstaklega í júní og ágúst, svo bráðnun jökla var ekki mikil.
Þótt viðskiptavinum hafi verið tilkynnt að grípa þurfi til skerðinga er enn óljóst hver þróunin verður næstu vikurnar. Ef haustið verður úrkomusamt gæti staðan strax skánað nokkuð, en grunnvatnsstaða Tungnaár er nú í sögulegu lágmarki og það mun hafa áhrif á rennsli árinnar á komandi vetri.
Ekki hefði þurft að koma til skerðinga á þessum tímapunkti ef flutningskerfið gerði Landsvirkjun kleift að færa nægilega orku milli landshluta. Hálslón við Kárahnjúka er t.d. þegar komið á yfirfall. Að sama skapi er ólíklegt að grípa hefði þurft til skerðinga ef vindorkuverið við Vaðöldu (Búrfellslundur) væri tekið til starfa, en vonast er til að vindorkuverið verði komið í fullan rekstur undir árslok 2026.