Landsvirkjun áfrýjar dómi héraðsdóms

20.01.2025Hvammsvirkjun, Fyrirtækið

Óskað eftir leyfi til áfrýjunar dóms beint til Hæstaréttar

Landsvirkjun hefur ákveðið að áfrýja dómi héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. janúar sl. þar sem virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi og óska eftir því að málið fari beint til Hæstaréttar.

Ástæða áfrýjunarinnar er einföld: Við teljum dóminn í meginatriðum rangan. Því fer fjarri að hægt sé að túlka vilja löggjafans á þann hátt sem þar er gert.

Hefði það verið ætlun löggjafans að lög um stjórn vatnamála skyldu standa í vegi fyrir nýjum vatnsaflsvirkjunum á Íslandi sem og öllum öðrum stærri framkvæmdum, s.s. brúargerð, flóðvarnargörðum, dýpkun hafna ofl. sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot, hefði það verið ein stærsta pólitíska ákvörðun þess tíma. Hvergi sjást merki þess í skjölum eða umræðum á Alþingi á þeim tíma að löggjafinn hafi haft hug á að umbylta málum með þeim hætti.

Þvert á móti er þrennt alveg ljóst þegar ferill laganna á Alþingi er skoðaður:

  • Tilgangur löggjafarinnar var að innleiða vatnatilskipunina án nokkurra efnislegra breytinga.

Um breytingartillögur nefndarinnar kemur eftirfarandi t.a.m. fram í ræðu Marðar Árnasonar, þáverandi þingmanns Samfylkingar og framsögumanns umhverfisnefndar: „Að auki leggur nefndin til ýmsar efnisbreytingar sem ekki er fjallað um hér, minni háttar, og þar að auki ýmsar lagatæknilegar breytingar og málfarsbreytingar sem þörf er á við spánnýja löggjöf.“

  • Tilgangur laga um stjórn vatnamála er ekki að koma í veg fyrir allar framkvæmdir sem hafa áhrif á vatnshlot.

Úr ræðu Birgis Ármannssonar, þáverandi fulltrúa Sjálfstæðisflokks í nefndinni, um málið:

„...um það hafa ekki verið hörð pólitísk átök. Fremur hefur verið deilt um orðalag og slíka þætti sem ekki varða neina meginstefnu.

  • Ekkert bendir til þess að löggjafinn hafi vísvitandi ætlað að þrengja enn frekar skilyrði fyrir vatnsaflsvirkjunum en vatnatilskipunin mælir fyrir um.

1. júlí 2015 samþykkti Alþingi þingsályktun sem færði Hvammsvirkjun úr biðflokki í orkunýtingarflokk rammaáætlunar. Slík ályktun hefði tæplega náð fram að ganga ef löggjafinn ætlaði að haga stjórn vatnamála á þann veg að koma beinlínis í veg fyrir að virkjunin yrði að veruleika.

Rándýr töf

Undirbúningsframkvæmdir fyrir Hvammsvirkjun eru hafnar, s.s. veglagning og undirbúningur vinnubúða og stór útboð eru áætluð á næstu mánuðum. Erfitt er að leggja mat á þann kostnað sem hlýst af seinkun verkefnisins, hann fer að einhverju leyti eftir því hversu löng töfin verður.

Það er dýrt að undirbúa vatnsaflsvirkjun og þegar þarf endurtekið að fresta útboðum og vinna gögn upp á nýtt er kostnaðurinn fljótur að hlaðast upp og hætta á að tiltrú bjóðenda tapist. Nýjustu áætlanir gerðu ráð fyrir að Hvammsvirkjun yrði gangsett síðla árs 2029 en nú má gera ráð fyrir því að það verði ekki fyrr en á næsta áratug.

Landsvirkjun styður áætlun umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um að draga úr skaðanum með lagasetningu. Tafirnar undanfarin ár byggja m.a. á töfum á afgreiðslu rammaáætlunar, kærumálum tengdum umhverfismati, annmörkum á málsmeðferð stofnana og nú því nýjasta, dómi héraðsdóms um meintan vilja Alþingis við afgreiðslu frumvarps, sem Landsvirkjun telur ekki eiga við nein rök að styðjast.

Þær hafa því lítið sem ekkert með virkjunina sjálfa að gera eða hvernig Landsvirkjun hefur staðið að undirbúningi hennar enda er Hvammsvirkjun líklega það verkefni sem mest hefur verið rannsakað á Íslandi. Við teljum fullvíst að virkjunin muni rísa, en með meiri kostnaði en annars hefði verið.