Fallið frá skerðingum fyrir norðan og austan

11.12.2024Orka
Þórisvatn í vetrarbúningi
Þórisvatn í vetrarbúningi

Fallið frá skerðingum fyrir norðan og austan

Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á norður- og austurhluta landsins að ekki muni koma til þeirra skerðinga á afhendingu raforku um áramótin sem reiknað hafði verið með. Áfram verður fylgst með stöðu mála, en útlitið á svæðinu er þokkalegt, t.d. er staða Hálslóns betri í ár en í fyrra.

Skerðingar á suðvesturhluta landsins hófust 24. október sl. og munu standa áfram. Áætlað var að skerðingar á norður- og austurhluta landsins hæfust 22. nóvember, þeim var svo frestað til áramóta hið minnsta en nú er fallið frá þeim um óákveðinn tíma.

Síðastliðin ár hefur miðlunarstaða verið ívið betri á Norður- og Austurlandi. Þetta ójafnvægi í miðlunarstöðu á milli landshluta verður til vegna mismunandi veðurfars en einnig vegna takmarkana í flutningskerfi Landsnets. Landsvirkjun getur ekki flutt eins mikla orku að norðaustan og fyrirtækið vildi til að styðja við raforkuafhendingu sunnanlands og ná jafnvægi í miðlunarstöðu á milli landshluta.

Endurkaup frá Elkem

Stærsta miðlunarlón Landsvirkjunar suðvestanlands, Þórisvatn, stendur enn mjög lágt en hefur þó náð svipaðri stöðu og það var á sama tíma í fyrra með rigningum undanfarinna vikna. Vegna stöðunnar hefur verið ákveðið að virkja ákvæði í samningi við járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga, sem heimilar Landsvirkjun endurkaup raforku af fyrirtækinu við aðstæður sem þessar. Þessi endurkaup eru síðasta vatnssparandi úrræðið sem Landsvirkjun hefur yfir að ráða og jafnframt hið kostnaðarsamasta.

Vegna þessara krefjandi aðstæðna biðlaði Landsvirkjun til viðskiptavina sinna á stórnotendamarkaði fyrr á árinu um að endurselja raforku úr samningum sínum, til að verja lónstöðuna. Áhuginn reyndist lítill og leiddi til mjög takmarkaðra viðskipta.