Útboð á vindmyllum fyrir Búrfellslund

17.01.2024Búrfellslundur

Útboð á vindmyllum fyrir Búrfellslund

Landsvirkjun hefur ákveðið að auglýsa útboð á vindmyllum fyrir vindorkuver við Vaðöldu sem ber vinnuheitið Búrfellslundur. Verkefnið er boðið út með fyrirvara um leyfis- og skipulagsmál.

Verkefnið hefur verið í þróun í rúman áratug og var samþykkt í nýtingarflokk rammaáætlunar í júní 2022. Sótt var um virkjunarleyfi í október sama ár með fyrirvara um afgreiðslu skipulagsmála.

Vinna við aðalskipulagsbreytingu og gerð deiliskipulags fyrir svæðið hefur staðið yfir frá desember 2022 með Rangárþingi ytra en Búrfellslundur er alfarið innan þess sveitarfélags.

Einnig er unnið að samningum við íslenska ríkið sem landeiganda, en landsvæðið er innan þjóðlendu.

Hvers vegna að fara í útboð strax?

Þetta er gert til að auka líkurnar á því að verkefnið geti farið að skila orku inn á raforkukerfið fyrir lok árs 2026. Útboðsferli eru tímafrek og afhendingartími á búnaði langur.

Framkvæmdatíminn er áætlaður tvö ár en vegna veðurskilyrða á Íslandi er framkvæmdagluggi verkefnisins mjög stuttur. Hann takmarkast að mestu við sumartímann, einkum uppsetning vindmyllanna. Frestun á ákveðnum verkþáttum verkefnisins getur því seinkað gangsetningu um heilt ár.

Að hefja útboð með fyrirvara um leyfis- og skipulagsmál er óhefðbundið ferli hjá Landsvirkjun og tekur fyrirtækið þarna nokkra áhættu þrátt fyrir fyrirvara í útboðum. Stjórn fyrirtækisins telur hana hins vegar viðunandi miðað við þá hagsmuni sem eru í húfi og samþykkti á fundi sínum 12. janúar sl. að fara þessa leið.

Útboðsferlið tekur allt að átta mánuði og samhliða því er unnið að endanlegu skipulagi verkefnisins. Vonir standa til að öll tilskilin leyfi og samningar verði í höfn þegar því lýkur. Útboðsferli klárast aðeins þegar öll leyfi hafa verið veitt og samningum lokið.

Allt að 30 vindmyllur verða í Búrfellslundi, hver og ein með 4-5 MW uppsett afl og samanlögð orkugeta verður um 440 GWst á ári. Rammaáætlun gerir ráð fyrir allt að 120 MW uppsettu afli.

Aðkallandi að auka raforkuframboð

Orkuvinnslukerfi Landsvirkjunar er nú fullnýtt og orkan uppseld. Fyrirsjáanlegt er að þetta ástand vari þar til hægt er að auka orkuvinnslu.

Raforkuorkuvinnslan í dag getur ekki mætt eftirspurn eftir rafmagni fyrir eðlilegan vöxt atvinnulífsins og margboðuð orkuskipti. Það er því von okkar að spaðarnir á vindmyllum fyrsta vindorkuversins á Íslandi verði farnir að snúast í lok árs 2026.