Skerðingum fyrir norðan og austan frestað

15.11.2024Orka

Skerðingum fyrir norðan og austan frestað

Landsvirkjun hefur ákveðið að fresta skerðingum á raforku til stórnotenda á norður- og austurhluta landsins til áramóta hið minnsta. Ástæðan er batnandi staða miðlunarlóna eftir hlýindin og úrkomuna undanfarið, sem leitt hefur til þess að niðurdráttur hefur stöðvast tímabundið í öllum lónum.

Skerðingar til stórnotenda á suðvesturhluta landsins standa þó áfram, því þótt nokkuð hafi bæst í Þórisvatn stendur það enn mjög lágt og er í talsvert lægri stöðu en það var á sama tíma í fyrra.

Skerðingar á suðvesturhluta landsins hófust 24. október sl. og áætlað var að skerðingar á norður- og austurhluta landsins hæfust 22. nóvember. Á sama tíma voru stórnotendur hvattir til að draga úr álagi og skoða mögulega endursölu á rafmagni. Eftir hlýindi og rigningar undanfarið hefur miðlunarstaðan batnað í öllum landshlutum og því hægt að fresta skerðingum norðan- og austanlands til a.m.k. 1. janúar nk.