Útilistaverkið Römmuð sýn er óðum að taka á sig mynd á jarðhitasvæðinu við Þeistareyki. Sjálfir rammarnir, sem mynda stærstan hluta verksins, voru fluttir á staðinn á þriðjudag.
Landsvirkjun hefur alltaf látið vinna listaverk í tengslum við byggingu helstu mannvirkja sinna. Fyrir tveimur árum var efnt til hugmyndasamkeppni um listaverk í nágrenni við jarðvarmastöðina að Þeistareykjum. Jón Grétar Ólafsson arkitekt hlaut fyrstu verðlaun. Dómnefnd sagði að tillaga hans, Römmuð sýn, væri kröftug og djörf og vekti athygli á Þeistareykjum sem áningarstað. „Í verkinu er landslagið hafið upp og rammað inn á skemmtilegan hátt. Verkið býr yfir aðdráttarafli og vekur forvitni þeirra sem leið eiga um svæðið. Upplýsingar um nærumhverfið auka á upplifun verksins,“ sagði dómnefndin.
Nú styttist í að lokið verði við uppsetningu verksins og ástæða til að hvetja ferðamenn um Norðurland til að leggja dálitla lykkju á leið sína og fara að Þeistareykjum. Þar geta þeir notið listaverks móður náttúru í Rammaðri sýn.