Landsvirkjun flytur í Katrínartún

30.06.2023Fyrirtækið

Landsvirkjun hefur flutt höfuðstöðvar sínar tímabundið að Katrínartúni 2 í Reykjavík.

Hörður Arnarson, forstjóri, flytur út úr skrifstofu sinni á 8. hæð á Háaleitisbraut, sem hann hefur haft í fjórtán ár.
Hörður Arnarson, forstjóri, flytur út úr skrifstofu sinni á 8. hæð á Háaleitisbraut, sem hann hefur haft í fjórtán ár.

Landsvirkjun hefur flutt höfuðstöðvar sínar tímabundið að Katrínartúni 2 í Reykjavík.

Í fyrrahaust fannst mygla í húsnæði Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68. Við frekari rannsóknir kom í ljós að umfangið var töluvert og því hefur starfsfólk Landsvirkjunar verið dreift um skrifstofuhúsnæði í borginni undanfarna mánuði og verður í sumum tilfellum þar áfram fram á komandi vetur.

Húsnæðinu að Háaleitisbraut 68 verður lokað frá og með 1. júlí. Móttaka gesta og öll önnur starfsemi Landsvirkjunar á höfuðborgarsvæðinu mun að endingu sameinast í Katrínartúni næstkomandi vetur, en fyrsti hópurinn er þegar fluttur yfir.

Starfsfólk Landsvirkjunar kveður Háaleitisbrautina með söknuði að sinni, en þar hefur fyrirtækið átt höfuðstöðvar sínar í nærri hálfa öld. Til skoðunar er annað hvort að gera endurbætur á húsnæðinu eða að flytja starfsemina í nýtt húsnæði.

„Það er mikils virði að tímabundin lausn hafi fundist á húsnæðismálum Landsvirkjunar,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri. „En nú þarf einfaldlega að meta hvort borgi sig að gera endurbætur á gamla húsnæðinu eða hvort finna þurfi nýtt framtíðarhúsnæði fyrir fyrirtækið.“