Tveir kynningarfundir
Landsvirkjun boðar til kynningarfunda fyrir íbúa í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi dagana 19. og 20. nóvember nk.
Sveitarfélögin tvö hafa nú veitt framkvæmdaleyfi vegna Hvammsvirkjunar og vindorkuvers við Vaðöldu.
Á fundunum verður farið yfir helstu framkvæmdir Landsvirkjunar í sveitarfélögunum á næstunni. Þá munu fulltrúar Vegagerðarinnar einnig skýra frá áformum um framkvæmdir sínar.