Allt um orkuskiptin
Ný útgáfa af vefnum orkuskipti.is var sett í loftið í gær. Á fjölmennum fundi í Kaldalóni í Hörpu var farið yfir helstu nýjungar og hvað hefði breyst frá því að vefurinn var fyrst opnaður árið 2022. Hann er unninn í samstarfi Landsvirkjunar, Samtaka iðnaðarins, Samorku, EFLU og Grænvangs.
Á fundinum fóru þau Haukur Ásberg Hilmarsson frá Landsvirkjun og Ágústa Loftsdóttir frá EFLU yfir margt það markverðasta sem á vefnum er að finna, t.d.:
- Ísland flytur inn olíu fyrir um 160 milljarða króna á ári og því til mikils að vinna að ná fram þriðju orkuskiptunum.
- Ísland er í 22. sæti yfir orkuframleiðslu á mann af þeim 157 ríkjum heims sem eru með yfir 100.000 íbúa. Við stöndum þó fremst þegar kemur að framleiðslu á endurnýjanlegri orku á mann.
- Orkunotkun á mann á Íslandi er sú 10. mesta í heiminum, við sitjum þar á milli Kanada og Bandaríkjanna en notum ekki mikið meiri orku á höfðatölu en til dæmis Noregur og Svíþjóð. Orkunotkun heimilanna er þó meiri en á hinum Norðurlöndunum.
- Vegna landslags og legu Íslands eru vatnsafl, jarðvarmi og vindorka á landi hagkvæmir kostir hérlendis. Sólarorka og vindorka á hafi eru sem stendur ekki hagkvæmir orkukostir við íslenskar aðstæður. Sjávarorka og fljótandi vindmyllur á hafi nýta tækni sem er enn í þróun og ekki samkeppnishæf við áðurnefnda kosti, en gætu orðið það á næstu áratugum.