Góð afkoma þrátt fyrir áskoranir í rekstri

15.11.2024Fjármál

Árshlutareikningur Landsvirkjunar fyrir janúar til september 2024 hefur verið birtur.

Góð afkoma þrátt fyrir áskoranir í rekstri

Árshlutareikningur janúar til september 2024
  • Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á þriðja ársfjórðungi nam 8,7 milljörðum króna og handbært fé frá rekstri 8,5 milljörðum.
  • Áfram vex fjárhagslegur styrkur fyrirtækisins, eiginfjárhlutfall er 62,4% og skuldsetning er 1,48× rekstrarhagnaður fyrir afskriftir.
  • Rekstrartekjur lækkuðu á tímabilinu miðað við sama tíma metársins 2023, þar sem selt magn dróst saman, verðtenging í einstökum samningi breyttist og innleystar áhættuvarnir drógust saman á milli ára.

Hörður Arnarson, forstjóri:

Helstu upplýsingar úr uppgjöri

„Rekstur fyrirtækisins gengur áfram vel í sögulegum samanburði, þótt hann jafnist ekki á við metafkomu ársins 2023. Hagnaður af grunnrekstri á þriðja ársfjórðungi nam 65 milljónum bandaríkjadala, eða rúmlega 8,7 milljörðum króna og dróst saman um 31%.

Aðstæður voru áfram krefjandi á þriðja fjórðungi. Vatnsbúskapur var sögulega lakur eftir þurrt og kalt sumar á hálendinu og litla bráðnun jökla. Rekstrartekjur drógust saman miðað við sama tímabil 2023 í takti við minna selt magn, auk breytinga á verðtengingu í samningi við stórnotanda og lækkunar innleystra áhættuvarna.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar

Fjárhagslegur styrkur Landsvirkjunar vex áfram. Eiginfjárhlutfall er nú rúmlega 62% og lánshæfismatsfyrirtækið S&P staðfesti A- langtímaeinkunn fyrirtækisins með stöðugum horfum í lok september.“