Framkvæmdastjórn
Stjórn Landsvirkjunar ræður forstjóra og fara stjórn og forstjóri með stjórn fyrirtækisins. Aðstoðarforstjóri annast sameiginleg málefni fyrirtækisins og stefnumótun, svo og að tryggja vandaða stjórnarhætti.
Forstjóri
Hörður Arnarson
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, er með PhD í rafmagnsverkfræði frá DTU í Danmörku. Hörður lauk námi í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1986. Að því loknu stundaði hann framhaldsnám við DTU í Danmörku og lauk doktorsprófi árið 1990.
Hörður starfaði hjá Marel frá árinu 1985 og þar af sem forstjóri fyrirtækisins í tíu ár frá 1999 til 2009.
Frá maí til nóvember árið 2009 gegndi Hörður starfi forstjóra Sjóvár og leiddi endurskipulagningu félagsins.
Aðstoðarforstjóri
Kristín Linda Árnadóttir
Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í umhverfisfræði og sjálfbærni (LUMES) frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð og LL.M. meistaragráðu í Evrópurétti við lagadeild Háskólans í Lundi.
Kristín gegndi starfi forstjóra Umhverfisstofnunar á árunum 2008 til 2019 og starfaði áður hjá umhverfisráðuneytinu.
Framkvæmdastjóri Vatnsafls
Gunnar Guðni Tómasson
Gunnar Guðni Tómasson er með doktorsgráðu í straumfræði frá Massachusetts Institute of Technology (MIT). Gunnar Guðni var áður forstjóri HRV ehf. Þar áður starfaði hann sem forseti Tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík um fjögurra ára skeið.
Frá námslokum 1991 og þar til Gunnar Guðni tók við starfi við HR árið 2007 starfaði hann við fjölbreytt verkfræði- og stjórnunarstörf hjá verkfræðistofunum Vatnaskil og VST auk þess sem hann var dósent við Verkfræðideild Háskóla Íslands um nokkurra ára skeið.
Framkvæmdastjóri Vinds og jarðvarma
Bjarni Pálsson
Bjarni er með B.S. gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, MSc gráðu í olíuverkfræði frá Heriot-Watt háskólanum í Edinborg í Skotlandi og doktorspróf í olíuverkfræði frá sama skóla.
Bjarni hefur starfað hjá Landsvirkjun frá ársbyrjun 2002. Hann gegndi síðast starfi forstöðumanns Þróunar jarðvarma og bar þar ábyrgð á stefnumótun, áætlanagerð og framkvæmd stórra verkefna, m.a. stækkun Þeistareykjavirkjunar. Hann hefur einnig verið í fararbroddi við innleiðingu vindorku sem þriðju stoðar Landsvirkjunar, ásamt því að stýra fjölda nýsköpunar- og þróunarverkefna á sviði endurnýjanlegrar orku. Bjarni hefur víðtæka reynslu af stjórnarsetu, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi og er forseti Alþjóða jarðhitasamtakanna (IGA) 2024-2026.
Framkvæmdastjóri Fjármála og upplýsingatækni
Rafnar Lárusson
Rafnar Lárusson er með MSc gráðu í fjármálum frá Boston College og MSc gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Áður gegndi hann starfi forstöðumanns fjárstýringar hjá Actavis Group hf. þar sem hann bar ábyrgð á fjárstýringu samstæðunnar. Hann starfaði sem forstöðumaður fjárstýringar hjá Bakkavör Group hf. á árunum 2004-2007.
Rafnar var á árunum 1999-2004 sérfræðingur á fjármálasviði Haga hf., og Rio Tinto Alcan hf., auk þess sem hann var sérfræðingur á sviði markaðsviðskipta hjá Kaupþingi banka hf.
Framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu
Tinna Traustadóttir
Tinna Traustadóttir útskrifaðist frá Háskólanum í Reykjavík árið 2017 með meistaragráðu í stjórnun og viðskiptum (MBA) og er einnig með MSc. í lyfjafræði frá Háskóla Íslands.
Í tæplega 14 ár starfaði hún hjá Actavis og hlaut þar víðtæka reynslu af viðskiptaþróun og samningagerð í alþjóðlegu umhverfi. Á árunum 2005-2014 starfaði Tinna hjá Actavis í Bandaríkjunum, sem er stærsti lyfjamarkaður í heimi.
Framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og nýsköpunar
Ríkarður Ríkarðsson
Ríkarður Ríkarðsson útskrifaðist með BSc. gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá University of Denver árið 2000 og MSc. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Stanford University árið 2002. Þá lauk hann námi í stjórnunarfræðum við IMD Business School árið 2017.
Ríkarður hefur unnið hjá Landsvirkjun frá árinu 2011. Hann gegndi stöðu forstöðumanns viðskiptaþróunar og sölu hjá fyrirtækinu árin 2012-2017. Ríkarður var stjórnendaráðgjafi hjá McKinsey & Company árin 2009-2011. Árin 2006-2009 starfaði Ríkarður sem forstöðumaður og ráðgjafi hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum og 2002-2006 fyrir bandarískt hátæknifyrirtæki í Kísildal og stýrði evrópskri viðskiptaþróun þess í London.
Framkvæmdastjóri Framkvæmda
Ásbjörg Kristinsdóttir
Ásbjörg Kristinsdóttir er með doktorsgráðu í verkfræði frá Massachusetts Institute of Technology (MIT) ásamt MBA í stjórnun frá MIT Sloan School of Management.
Ásbjörg hefur starfað hjá Landsvirkjun með hléum frá árinu 2002. Hún stýrði byggingu Búrfellsstöðvar II, fyrst kvenna á Íslandi til að stýra slíku verkefni. Samhliða hefur hún komið að kennslu á háskólastigi á sviði verkefnastýringar, áhættustýringar og virkjanaframkvæmda.
Framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis
Jóna Bjarnadóttir
Jóna Bjarnadóttir hóf störf hjá Landsvirkjun árið 2014. Hún veitti deild umhverfis og auðlinda forstöðu frá árinu 2017 en tók við nýju sviði samfélags og umhverfis árið 2021. Hún er með meistaragráðu í umhverfisstjórnun og stefnumótun frá háskólanum í Lundi. Jóna hefur mikla reynslu af umhverfismálum og samvinnu við hagaðila.
Áður starfaði Jóna sem ráðgjafi lengst af hjá Mannviti þar sem hún var einnig umsjónarmaður umhverfisstjórnunarkerfis.