Tilboð í Toppstöðina

15.08.2024Viðskipti

Landsvirkjun hefur gert Reykjavíkurborg óskuldbindandi tilboð í Toppstöðina í Elliðaárdal, með það í huga að starfrækja þar höfuðstöðvar sínar. Húsið var í eigu orkufyrirtækis þjóðarinnar á árunum 1965-2008. Toppstöðin er einn nokkurra kosta sem Landsvirkjun er að íhuga nánar.

Húsið að Rafstöðvarvegi 4 hýsti áður fyrr olíu- og kolakynta varaaflstöð, svokallaða toppstöð. Reykjavíkurborg lagði stöðina fram sem hluta af stofnframlagi sínu til Landsvirkjunar árið 1965. Eftir því sem virkjunum fjölgaði minnkaði þörf á varaaflstöð og um 1980 var rekstri hennar hætt. Um tíma var rekið þarna frumkvöðlasetur en engin starfsemi hefur verið í húsinu undanfarin ár.

Um aldamótin kannaði Landsvirkjun möguleikann á nýjum höfuðstöðvum við Rafstöðvarveg 4, en á þeim tíma hugðist Reykjavíkurborg rífa húsið. Þar sem Reykjavíkurborg hefur nú hætt við þau áform ákvað Landsvirkjun að kanna þennan möguleika betur.

Landsvirkjun þurfti að rýma höfuðstöðvar sínar við Háaleitisbraut 68 á síðasta ári, eftir að mygla greindist í húsinu og hefur nú verið ákveðið að selja það. Höfuðstöðvar orkufyrirtækis þjóðarinnar eru núna í leiguhúsnæði að Katrínartúni 2 og hafa verið kannaðir möguleikar á að leigja eða kaupa nýjar höfuðstöðvar, eða byggja þær frá grunni. Húsið að Rafstöðvarvegi 4 er einn af þeim kostum sem horft hefur verið til.

Tilboð Landsvirkjunar er tvenns konar. Annars vegar kaup á Toppstöðinni sjálfri en einnig kaup á lóð undir bílastæði þar sem núverandi lóð býður ekki upp á stæði fyrir starfsfólk og gesti. Með áætluðum gatnagerðargjöldum þá er tilboðið um 725 milljónir kr.

Þá gerir tilboðið ráð fyrir að ásýnd Toppstöðvarinnar verði færð nær upprunalegu útliti frá 1948 og áhersla verði á að halda í sögulegt svipmót byggingarinnar. Leitast verður við að endurnýta núverandi mannvirki eftir því sem nútímakröfur leyfa, verði niðurstaðan sú að Landsvirkjun komi höfuðstöðvum sínum þar fyrir.