Skerðingar hjá stórnotendum nyrðra og eystra

08.02.2024Orka

Skerðingar hjá stórnotendum nyrðra og eystra

Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á norður- og austurhluta landsins að nauðsynlegt sé að grípa til skerðinga á raforku til þeirra, í samræmi við samninga. Skerðingarnar ná til álvers Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði, kísilvers PCC Bakka Silicon á Húsavík, TDK aflþynnuverksmiðjunnar og atNorth gagnaversins á Akureyri. Gert er ráð fyrir að skerðingarnar geti staðið allt fram í maí.

Eins og komið hefur fram hefur Landsvirkjun þurft að skerða afhendingu orku til stórnotenda á suðvesturhluta landsins undanfarið. Skerðingarnar hafa haft þau áhrif að staða Þórisvatns hefur batnað. Vegna takmarkana í flutningskerfi Landsnets var ekki ástæða til skerðinga fyrir norðan og austan fyrr en nú.

Þurrkatíð hefur verið fyrir norðan og austan. Það hefur valdið því að niðurdráttur lónanna í þessum landshlutum hefur verið hraðari en spáð var um miðjan janúar. Skerðingar núna eru til þess að verja vatnsstöðuna í Blöndulóni og Hálslóni.

Snjóalög yfir meðallagi

Snjóalög eru yfir meðallagi og horfur í vor, þegar leysingar hefjast, eru ágætar. Erfitt er hins vegar að spá fyrir um hvenær leysingar hefjast, en reynslan er sú að þær eru allt að mánuði síðar á ferðinni við Hálslón en Þórisvatn.

Þess vegna er gengið út frá að skerðingar á norður- og austurhluta landsins geti staðið allt fram í maí.