Raforkuöryggi, fyrir hverja?

Viðskiptagreining býður til samtals

Fimmtudaginn 21. nóvember 2024 kl. 9 stendur viðskiptagreining Landsvirkjunar fyrir opnum raforkuöryggisfundi í Grósku.

Húsið verður opnað kl 8:30 og boðið verður upp á léttar veitingar.

Fundinum verður einnig streymt af þessari síðu.

Á fundinum verður fjallað um raforkuöryggi, margvísleg sjónarmið því tengd og mögulegar lausnir.

Dagskrá

Fundarstjóri: Dagný Ósk Ragnarsdóttir, forstöðumaður viðskiptagreiningar hjá Landsvirkjun

Umræðustjóri: Silja Rán Steinberg Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri Rarik

Kynningar í upphafi fundar:

  • Gnýr Guðmundsson, forstöðumaður kerfisþróunar hjá Landsneti fer yfir raforkuspá Landsnets til ársins 2030
  • Erla Sigríður Gestsdóttir, teymisstjóri orku hjá Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu segir frá tillögum í samráðsgátt

Pallborð um framboðsskyldu og skyldur sölufyrirtækjanna

  • Tinna Traustadóttir | Landsvirkjun
  • Íris Róbertsdóttir | Vestmannaeyjabær og formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum
  • Hjálmar Helgi Rögnvaldsson | ON
  • Magnús Kristjánsson | Orkusalan
  • Hanna Björg Konráðsdóttir | Orkustofnun
  • Magnús Þór Ásmundsson | RARIK

Pallborð um skyldur flutningsfyrirtækisins og endursölu stórnotenda

  • Hörður Arnarson | Landsvirkjun
  • Guðrún Halla Finnsdóttir | Norðurál
  • Friðrik Friðriksson | HS Orka
  • Árni Hrannar Haraldsson | ON
  • Álfheiður Ágústsdóttir | Elkem

Á fundinum verða einnig spiluð örmyndbönd, þar sem sérfræðingar og hagaðilar tjá sig um raforkuöryggi.