Eyvindarstaðir í Kelduhverfi
Mælingar á brennisteinsvetni í andrúmslofti hafa verið stundaðar á Eyvindarstöðum í Kelduhverfi frá því í desember 2011. Helstu uppsprettur brennisteinsvetnis á svæðinu eru Gufustöðin í Bjarnarflagi, Kröflustöð, Þeistareykjastöð og náttúrulegt útstreymi frá jarðhitasvæðum.
Línuritið birtir 24 stunda hlaupandi meðaltal á tíu mínútna fresti en samkvæmt reglugerð nr. 514/2010 skal það að jafnaði vera undir 50 µg/m3en má þó fara upp fyrir þann styrk þrisvar sinnum á ári. Um óyfirfarnar mæliniðurstöður er að ræða.