Mikilvægt þróunarverkefni í orku og nýsköpun
Fjarðabyggð, Landsvirkjun og Copenhagen Infrastructure Partners (CIP) hafa undirritað viljayfirlýsingu um að meta kosti þess að þróa grænan orkugarð á Reyðarfirði. Í fyrstu verða kannaðir kostir þess að framleiða rafeldsneyti með vetni á Reyðarfirði en einnig verður farið í að skoða og greina möguleg samlegðaráhrif við aðra starfsemi á svæðinu. Þar verður m.a. horft til möguleika á orkuskiptum í sjávarútvegi og landflutningum, endurnýtingu varma til húshitunar á Reyðarfirði og notkun súrefnis við landeldi á fiski. Auk þessa verða kannaðir kostir til að afla orku á svæðinu fyrir mögulega starfsemi í græna orkugarðinum.
„Við fögnum þessari viljayfirlýsingu um uppbyggingu umhverfisvænnar iðnaðarstarfsemi á Reyðarfirði. Um er að ræða spennandi verkefni og við erum stolt af því að horft sé til Fjarðabyggðar til uppbyggingar á slíkri starfsemi. Í Fjarðabyggð er öflugt atvinnulíf og með þróun græns orkugarðs verður hægt að auka enn frekar verðmætasköpun í sveitarfélaginu. Það er verulegur ávinningur fyrir allt samfélagið í að þróa nýjar lausnir í orkumálum og skapa þannig frekari tækifæri fyrir frumkvöðla til nýsköpunar og uppbyggingar nýrrar atvinnustarfsemi,“ segir Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar.
Landsvirkjun stefnir að kolefnishlutleysi árið 2025 og tekur virkan þátt í alþjóðlegri baráttu gegn loftslagsvánni. Fyrirtækið vinnur eftir aðgerðaáætlun gegn losun gróðurhúsalofttegunda í eigin starfsemi, en er einnig stöðugt að leita leiða til að takast á við þær áskoranir sem loftslagsbreytingum fylgja í stærra samhengi. Uppbygging græns orkugarðs á Reyðarfirði er liður í þeirri vegferð.
„Baráttan við loftslagsvána kallar á þróun nýrra lausna sem gera orkuskipti möguleg og við viljum taka þátt í því. Vonir eru bundnar við að rafeldsneyti muni gera orkuskipti í skipasiglingum möguleg og við viljum kanna kosti þess að framleiða það hér á landi. Það felast mikil tækifæri í því fyrir okkar samfélag, bæði frá umhverfis- og efnahagslegu sjónarhorni, ef við getum nýtt innlent og umhverfisvænt eldsneyti við fiskveiðar okkar og vöruflutninga. Þátttaka CIP í þessu verkefni er einnig mikilvæg því þau koma inn með mikla alþjóðlega þekkingu og reynslu af fjárfestingum í framleiðslu endurnýjanlegrar orku,“ segir Ríkarður Ríkarðsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun.
CIP var stofnað árið 2012 af reynslumiklum stjórnendum úr danska orkugeiranum í samstarfi við danska lífeyrissjóðinn PensionDanmark. Sjóðir CIP eru með fjárfestingar um allan heim og eiga um 100 alþjóðlegir stofnanafjárfestar aðild að þeim.