Mikilvægi Landsvirkjunar fyrir íslenskt efnahagslíf
Matsfyrirtækið Moody´s hefur hækkað lánshæfismat Landsvirkjunar úr Baa1 í A3. Samhliða hefur Moody´s breytt horfum á lánshæfi Landsvirkjunar úr jákvæðum horfum í stöðugar.
Hækkunin kemur í kjölfar hækkunar á lánshæfismati íslenska ríkisins sem var hækkað úr A2 í A1 þann 20. september sl. en lánshæfismat Landsvirkjunar byggist að hluta til á lánshæfismati íslenska ríkisins vegna eignarhalds þess og mikilvægis Landsvirkjunar fyrir íslenskt efnahagslíf.
Mikilvægi Landsvirkjunar fyrir íslenskt efnahagslíf skýrist af því að Landsvirkjun vinnur um 70% af allri raforku á Íslandi og meðal stærstu viðskiptavina fyrirtækisins eru alþjóðleg orkusækin fyrirtæki sem skila um þriðjungi af útflutningi Íslands.
Að mati Moody´s endurspeglar lánshæfismatið sterka stöðu Landsvirkjunar á íslenskum orkumarkaði og góðri fjárhagsstöðu nú þegar fyrirtækið stefnir á framkvæmdir við nýja virkjunarkosti.